Á vit margbreytileikans

Komin er út bókin Á vit margbreytileikans – Víðidalsá og Fitjá, Hópið og Gljúfurá eftir Karl G. Friðriksson og Sigríði P. Friðriksdóttur hjá bókaútgáfunni Sölku. Bókin hefur að geyma veiðilýsingar fyrir Víðidalsá og Fitjá ásamt lýsingu á Hópinu og Gljúfurá. Á sama tíma lýsir hún fjölbreyttri sögu, mannlífi og náttúrufræði í Húnaþingi vestra.

Í bókinni er að finna stórskemmtilegar veiðisögur þar sem tekist er á við stórlaxa. Þá lýsir hún fjölskylduveiði í ám og vötnum, frá heiðum til ósa. Einnig skrifa þekktir fiskifræðingar um rannsóknir sínar á vatnasvæðinu. Bókin hefur að geyma fjölda ljósmynda sem teknar eru af landsþekktum ljósmyndurum.

Fleiri fréttir