Áburður hækkar frá 1 og upp í 6,9% hjá Fóðurblöndunni
Ný áburðarverðskrá Áburðarverksmiðjunnar fyrir árið 2012 er komin út. Áburðurinn hækkar um 1- 6,9 %, mismunandi eftir áburðartegundum. Vöruskráin inniheldur allar þær tegundir sem henta til að uppfylla þær kröfur sem bændur gera fyrir íslenskan landbúnað, segir í tilkynningu frá Fóðurblöndunni.
Allar áburðartegundir eru í 600 kílóa sekkjum, með merkingum á íslensku.
HÉR er hægt að sjá áburðarverðskrá fyrir árið 2012.
HÉR má sjá vöruskrá áburðar fyrir árið 2012.