Aðalfundur Biopool

Aðalfundur sjávarlíftæknisetursins BioPol ehf var haldinn um miðjan september síðastliðinn.  Á fundinum voru almenn aðalfundarstörf viðhöfð og félaginu meðal annars kosin ný stjórn, eins og fram kemur í nýlegri frétt á vefsíðu Skagastrandar.

Að þessu sinni voru gerðar breytingar á stjórn þar sem Dr. Rögnvaldur Ólafsson tók sæti Magnúsar B. Jónssonar. Í núverandi aðalstjórn eru því eftirtaldir: Adolf H. Berndsen formaður, prófessor Hjörleifur Einarsson, Sigríður Gestdóttir, Steindór R. Haraldsson og Dr. Rögnvaldur Ólafsson.

Dr. Rögnvaldur var lengst af starfandi við H.Í. og gegndi þar m.a. stöðu forstöðumanns Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands. Dr. Rögnvaldur er einnig þekktur fyrir að vera einn upphafsamanna Marel.

Að undanförnu hafa verið framkvæmdar töluverðar breytingar á heimasíðu BioPol ehf. Settar hafa verið upp tengingar á síðunni þar sem finna má flestar skýrslur og vísindagreinar sem félagið hefur komið að á undanförnum árum.

Einnig hefur verið sett upp síða þar sem hægt er að fylgjast með magni landaðs afla úr Húnaflóa. Fyrst og fremst eru settar fram upplýsingar um afla sem landað er á Skagaströnd en jafnframt yfirlit yfir magn á öðrum löndunarhöfnum við flóann. Gert er ráð fyrir að tölurnar verði uppfærðar mánaðarlega til þess að byrja með.

Meðfylgjandi er skýrsla stjórnar BioPol ehf vegna ársins 2013.

Fleiri fréttir