Aðalfundur Félags sauðfjárbænda í Austur–Húnavatnssýslu

Aðalfundur Félags sauðfjárbænda í Austur–Húnavatnssýslu verður haldinn mánudaginn 11. mars í Sjálfstæðishúsinu á Blönduósi og hefst hann kl. 20:30.

Gestir fundarins verða Kristján Eymundsson, ráðanautur, og Gunnar Sigurðsson, bóndi á Stóru-Ökrum í Skagafirði. Samkvæmt auglýsingu í nýjasta eintaki Gluggans munu þeir fara yfir kosti og galla notkunar verktaka í landbúnaði.

Auk þeirra mun Björn Steinbjörnsson, héraðsdýralæknir, mæta og fjalla um lungnakregðu í sauðfé ásamt fleiru.

Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf og boðið verður upp á kaffiveitingar.

Fleiri fréttir