Aðalfundur Ferðamálasamtaka Norðurlands vestra í dag
Aðalfundur Ferðamálasamtaka Norðurlands vestra verður haldinn á Hótel Varmahlíð klukkan 15 í dag. Efni fundarins er venjuleg aðalfundarstörf. Tilgangur samtakanna er að vinna að hagsmunamálum aðila í ferðaþjónustu og samræmingu hennar á Norðurlandi vestra.
Skulu þau meðal annars skipuleggja samstarf aðila innan samtakanna, m.a. með fræðslu- og útgáfustarfsemi. Einnig efla sameiginlega kynningu á svæðinu sem áfangastað, stuðla að umræðu um framtíðaráform á svæðinu og vera sameiginlegur tengiliður við Ferðamálasamtök Íslands og stjórnvöld.
Aðilar að samtökunum geta verið sveitarfélög á Norðurlandi vestra, fyrirtæki eða félög sem tengjast að einhverju leiti ferðaþjónustu, svo og einstaklingar vegna sjálfstæðra starfa og tengsla við ferðaþjónustu.