Aðalfundur Golfklúbbs Skagafjarðar

Aðalfundur GSS 2020 var haldinn 30. nóvember.  Fundurinn var netfundur að hluta: stjórnin var í skála en aðrir fundarmenn sóttu fundinn með hjálp Teams.

Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf.

Sigurjón Gestsson var kjörinn heiðursfélagi GSS fyrir áratuga sjálfboðavinnu við gróðursetningu og umhirðu gróðurs á Hlíðarendavelli. 

Árið 2020 kom vel út í golfinu, starfið var blómlegt, félögum fjölgaði og fjöldi ferðakylfinga heimsótti Skagafjörð. Félagið varð 50 ára og fagnaði stórafmælinu með ýmsum hætti. 

Ekki urðu miklar breytingar á stjórn og nefndum. Nýtt fólk tekur við af þeim sem fara úr stjórn og nefndum eftir farsælt starf. Stjórn og nefndir 2021:  http://www.gss.is/um-gss/stjornnefndir/ 

Á fundinum var greint frá endurnýjun samninga milli GSS og Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Einnig var sagt frá afmælisgjöf sveitarfélagsins upp í kaup á golfhermi. Nýr golfhermir mun koma sér vel í starfinu, ekki síst við þjálfun barna og unglinga. 

Stórn GSS þakkar félögum fyrir gott golfár 2020 og fyrirtækjum fyrir stuðninginn á 50 ára afmælisárinu. Við hlökkum til starfsins 2021 og bjóðum nýja félaga velkomna. 

Nánari upplýsingar um aðalfundinn er að finna á heimasíðu GSS, www.gss.is 

Stjórn GSS

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir