Aðalfundur Kvennaskólans í kvöld
Vinir Kvennaskólans ætla að halda aðalfund í Kvennaskólanum í kvöld, mánudaginn 21. maí, kl. 20.00. Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf og farið verður yfir starfsemi síðasta árs. Heitt verður á könnunni og Minjastofan opin.
Samkvæmt heimildum Húnahornsins eru vinir Kvennaskólans nú 234 talsins og nýir félagar ávallt velkomnir. Þar er einnig greint frá því að mikil ánægja ríkir með framvindu verkefna síðasta árs en þá var m.a. lokið við uppsetningu á Minjastofu í húsnæði Kvennaskólans. Menningarráð Norðurlands vestra veitti styrk til verksins að upphæð kr. 500.000 sem gerði kleyft að setja upp sögusýningu með upplýsingum um skólastarfið og sýnishornum úr kennslu.
Þá var einnig styttan í garðinum við skólann eftir Guðmund frá Miðdal pússuð upp af syni listamannsins, Yngva Guðmundssyni. Styttan er nú í geymslu í áhaldahúsi Blönduósbæjar og bíður þess að verða sett upp á ný.
Jafnframt var samið við ljósmyndara um að taka myndir af öllum skólaspjöldum og koma þeim á stafrænt form. Það er gert til þess að auka varðveislugildi til framtíðar og auðveldar eftirtökur. Það verk er enn í vinnslu. Sömuleiðis er verið að hreinsa og gera við eitt málverk og þörf er á að yfirfara fleiri.
Fyrirhuguð eru mikil hátíðarhöld í haust, eða þann 13. október, í tilefni 100 ára afmælis Kvennaskólahússins. „Kvennaskólinn hefur nú fengið góða andlitslyftingu þó framkvæmdum sé ekki að fullu lokið en unnið verður við frágang á lóð í sumar eins og fram hefur komið í fréttum,“ segir á Húna.is.