Aðalfundur Landsbyggðin Lifi
Aðalfundur Landsbyggðin Lifi – LBL verður haldinn laugardaginn 10. október 2015, klukkan 13:30 í húsnæði Skjálftasetursins (skólahúsinu) á Kópaskeri. Landsbyggðin lifi - LBL, er hreyfing fólks á Íslandi sem vill örva og efla byggð um land allt. Samtökin eru regnhlífarsamtök félaga og einstaklinga sem áhuga hafa á landsbyggðamálum.
Á dagskrá eru venjulega aðalfundarstörf og önnur mál.
„Ef einhverjir utan stjórnar hafa áhuga á að komast í aðalstjórn eða varastjórn samtakana er því tekið fagnandi. Mörg spennandi verkefni eru í farvatninu og sum þeirra komin af stað. Vinsamlegast hafið samband við Sigríði Svavarsdóttur, gjaldkera ef þig langar að ganga til liðs með okkur,“ segir í fréttatilkynningu.
Þeim félögum sem hafa hug á að nýta ferð með stjórnarmönnum er bent á að hafa samband við Siggu Svavars. Netfangið er: landlif@landlif.is, eða melateigur@gmail.com. Sími 7729632.
Byggðaþing veður haldið frá 10-12 á sama stað. Allir velkomnir, bæði á byggðaþingið og aðalfundinn!