Aðalfundur Landssamtaka raforkubænda
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
03.06.2015
kl. 09.15
Landssamtök raforkubænda munu halda sinn árlega aðalfund á Hólum í Hjaltadal laugardaginn 6. júní.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Setning fundarins og skipun starfsmanna.
- Skýrsla stjórnar.
- Umræða um skýrslu stjórnar
- Erindi Bjarna Th. Bjarnasonar, sveitarstjóra um athugun á smávirkjanakostum í Dalvíkurbyggð.
- Erindi Konráðs Konráðssonar, sölustjóra EVEN um rafbíla er fyrirtækið hefur til sölu.
- Erindi Andra Teitssonar, framkvæmdastjóra Fallorku um nýja virkjun í Glerá.
- Fyrirspurnir til framsögumanna og orðið frjálst.
- Reikningar LR 2014 lesnir upp.
- Reikningar bornir undir atkvæði, og árgjald ákveðið.
- Kaffihlé, áætlað kl. 15.30
- Kosinn einn maður í stjórn til þriggja ára og einn í varastjórn sama tíma.
- Kosnir tveir skoðunarmenn til eins árs.
- Önnur mál.
Fundarslit, (áætluð eigi síðar en 17.30).
Nánari upplýsingar eru að finna á heimasíðu Landssamtaka raforkubænda.