Aðalfundur Samfylkingarinnar í NV-kjördæmi

Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi heldur aðalfund laugardaginn 14. febrúar kl. 12-17 í Gamla kaupfélaginu á Akranesi. Samkvæmt fréttatilkynningu mun Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, og Guðbjartur Hannesson, þingmaður í kjördæminu, ávarpa fundinn og taka þátt í umræðum.

Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Einnig verður haldið stefnuþing um tillögur málefnanefnda fyrir landsfund Samfylkingarinnar 20. og 21. mars nk. á Hótel Sögu. Tillögurnar munu liggja frammi á fundinum.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta á aðalfundinn og stefnuþingið,“ segir loks í tilkynningunni.

Fleiri fréttir