Aðalfundur Soroptimista: styrkur til Magga og nýr klúbbur við Húnaflóa
Aðalfundur Soroptimistaklúbbs Skagafjarðar fór fram í gærkvöldi á Kaffi Krók, þar sem farið var yfir starf félagsins síðastliðið ár og þar fóru jafnframt fram stjórnarskipti. Soroptimistar eru alþjóðasamtök kvenna sem beita sér fyrir að veita þjónustu í heimabyggð, heimalandi og á alþjóðavettvangi og miða að því að taka virkan þátt í ákvarðanatöku hvarvetna í þjóðfélaginu.
Á heimasíðu Soroptimista kemur fram að markmið samtakana sér að stuðla að heimsmynd þar sem konur og stúlkur fái betur notið sín með bættum lífskilyrðum og auknum tækifærum. Hvetja þær til aðgerða með fjölþjóðlegu samstarfi og alþjóðlegu félaganeti með það að augnamiði er að skapa öruggt og heilsusamlegt umhverfi. Að sama skapi er aukið aðgengi að menntun, eflt leiðtogahæfni og miðlað hagnýtri þekkingu til sjálfbærrar framtíðar.
Kristjana Jónsdóttir sem hefur verið formaður Skagafjarðarklúbbsins síðastliðin tvö ár lét af embætti í gærkvöldi og Ásdís Guðmundsdóttir tók við stjórnartaumunum. Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir tók við varaformennsku og leysti Margréti Pétursdóttur af hólmi. Ásta Birna Jónsdóttir varð ritari og tók við að Herdísi Klausen. Lydía Jósafatsdóttir hefur verið gjaldkeri síðasliðið ár og mun halda áfram í því hlutverki til ársins 2012 en kosið er til embætta til tveggja ára.
Meðal þeirra atriða sem fram komu á fundinum var að nýr soroptimistaklúbbur verður stofnaður þann 5. nóvember nk., Soroptimistaklúbburinn við Húnaflóa og mun stofnfundur hans fara fram að Reykjum í Hrútafirði. Á fundinum var einnig ákveðið að styrkja Magnús Jóhannesson um 100 þúsund krónur, en Magnús er bundinn við hjólastól og hefur verið í endurhæfingu eftir að hann lenti í vinnuslysi í sumar.