Aðalfundur Umf. Hvatar á morgun

Á morgun verða haldnir aðalfundir Umf. Hvatar á Blönduósi og hefur verið auglýst eftir fólki til að taka þátt í aðalstjórn. Hugmyndir eru uppi um að stofna sunddeild og kanna á hvort áhugi sé fyrir því að endurvekja frjálsíþróttadeildina.

-Það getur ekki verið neitt starf í gangi hjá Hvöt ef ekki tekst að manna stjórnir félagsins. Við erum að gera fullt af góðum hlutum hjá félaginu en viljum gera enn betur. Komið og kynnið ykkur starfið, kannið málin og komið með hugmyndir, segja þau Þórhalla Guðbjartsdóttir, formaður umf. Hvatar og Hilmar Þór Hilmarsson, formaður Knattspyrnudeildarinnar.

  • Aðalfundur knattspyrnudeildarinnar verður haldinn kl. 18:00 en aðalstjórnin fundar kl. 19:30
  • Báðir fundirnir verða haldnir í Blönduskóla (Nýja skóla)
  • Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.

Fleiri fréttir