Aðalfundur Vina kvennaskólans
Vinir kvennaskólans á Blönduósi héldu aðalfund sinn í fyrrakvöld, 4. júní. Kynnt var skýrsla stjórnar, fjallað um skrif á sögu skólans og fjallað um ýmsa þætti semsnú að menntun, heimilum, umhverfi og næringu, en sagt er frá fundinum á fésbókarsíðu samtakanna.
Aðalbjörg Ingvarsdóttir formaður kynnti skýrslu stjórnar, en þar var farið yfir það helsta í starfi samtakanna. Meðal þess sem hún nefndi var að nokkuð miðar áfram við skrif á sögu Kvennaskólans á Blönduósi og var á fundinum ákveðið að úthluta 500.000 krónum til að halda því góða verki áfram. Rekstur samtakanna gengur vel enda njóta þau velvildar fyrrum nemenda við skólans auk annarra stuðningsaðila.
Kristín Sigfúsdóttir var gestur fundarins. Kristín, sem er kennari að mennt, fjallaði á lifandi hátt um ýmsa þætti sem snúa að menntun, heimilum, umhverfi okkar og næringu. Náði hún að fanga athygli þeirra rúmlega 20 fundargesta sem á hana hlýddu. Auk almennra fundarstarfa og erindis Kristínar var að venju boðið upp á dýrindis kaffiveitingar að hætti Vina kvennaskólans.
Allir þeir sem áhuga hafa á að gerast Vinir kvennaskólans geta haft samband við Aðalbjörgu formann til að skrá sig.