Aðalskipulag Blönduósbæjar verði staðfest með fyrirvara
Á fundi bæjarráðs Blönduóssbæjar sem haldinn var í gær var tekið fyrir bréf frá Skipulagsstofnun þar sem segir að það hafi sent til staðfestingar umhverfisráðherra Aðalskipulag Blönduósbæjar 2010-2030.
Skipulagsstofnun mælir með að Aðalskipulag Blönduósbæjar 2010-20130 verði staðfest með þeim fyrirvara að ekki verði heimilaðar framkvæmdir sem geti hindrað áform Vegagerðarinnar og að Blönduósbær og Vegagerðin hefji samráðsferli þar sem leitað verður leiða til að finna framtíðarlausn á legu Hringvegar í Austur-Húnavatnssýslu.
Bæjarstjóra var falið að óska eftir fundi með umhverfisráðherra um málið.
