Aðalskipulag Skagabyggðar 2010-2030 í athugun

Auglýst er eftir athugasemdum við tillögu að aðalskipulagi Skagabyggðar 2010-2030 en aðalskipulagsuppdráttur, greinargerð, umhverfisskýrsla, skýrslur vegna fornleifaskráningar og athugasemdir Skipulagsstofnunar liggja frammi í Félagsheimilinu Skagabúð til 27. desember 2010.

Ennfremur verða gögnin aðgengileg á heimasíðunni http://www.hafnir.is og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.

Þess ber einnig að geta að nú er í auglýsingu tillaga að niðurfellingu Svæðisskipulags Austur-Húnavatnssýslu 2004-2016.

Athugasemdum skal skila skriflega til oddvita, merkt aðalskipulag, Hafnir, 545 Skagaströnd, fyrir 14. janúar 2011. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

Fleiri fréttir