Aðventuhátíð í Sauðárkrókskirkju á sunnudagskvöldið
Nú á sunnudaginn, sem er annar sunnudagur í aðventu, verður nóg um að vera í Sauðárkrókskirkju. Sunnudagaskóli er kl. 11 um morguninn og síðan verður aðventuhátíð kl. 20. Þegar hátíðinni í kirkjunni lýkur verður kirkjugestum boðið upp á heitt súkkulaði og piparkökur í safnaðarheimilinu.
Á aðventuhátíðinni koma fram 10-12 ára börn úr barnastarfi kirkjunnar, kirkjukórinn syngur fallega aðventu- og jóla söngva undir stjórn Rögnvaldar Valbergssonar orgnista, skátar tendra ljós á aðventukransinum með friðarloganum frá Betlehem og ræðukona kvöldsins verður Kristín Helgadóttir (Kidda) sem segir frá ólíku jólahaldi í Ástralíu og Íslandi.
Þá er rétt að minna á aðventustundir á Heilbrigðisstofnuninni sama dag, kl. 16 á deild 2 og kl.16.30 á dvalarheimilinu.
oli@feykir.is

