ADVICE gegn Icesave
Stofnuð hafa verið samtökin ADVICE, sem hafa það að markmiði að upplýsa, fræða og miðla upplýsingum um ástæður og mikilvægi þess að hafna beri Icesave lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu þann 9. apríl næstkomandi.
ADVICE hópurinn telur að hallað hafi á sjónarmið gegn Icesave lögunum í kynningu málsins. Hópurinn vill leggja sig fram um að upplýsa um helstu rök gegn Iögunum. Kjósendur eiga rétt á því að kynna sér bæði sjónarmiðin áður en þeir gera upp hug sinn.
Meðlimir ADVICE hópsins hafa ólíkar stjórnmálaskoðanir en eru sammála um að farsælast sé fyrir Ísland að hafna Icesave lögunum. Hópurinn telur nú formlega 15 meðlimi sem hafa meðal annars bakgrunn á sviði lögfræði, hagfræði, viðskipta- og verkfræði. Starf hópsins er unnið í sjálfboðavinnu.
Verkefni ADVICE hópsins er að greina hugsanlegar afleiðingar þess að hafna Icesave, færa fram sem skýrust rök með höfnun og einnig að varpa ljósi á helstu veikleika í málflutningi þeirra sem vilja að þjóðin samþykki Icesave lögin.
ADVICE hópurinn boðar til blaðamannafundar sem haldinn verður mánudaginn 14. mars, kl. 11:00 í Bókasal Þjóðmenningarhússins.
Á fundinum mun hópurinn kynna sig, kynna starfið fram að þjóðaratkvæðagreiðslu og kynna ágrip af meginröksemdum gegn Icesave lögunum. Einnig verður vefur hópsins www.advice.is opnaður formlega, en á honum verður hægt að nálgast upplýsingar og greinar um Icesave og rök með því að fella Icesave lögin.