Æfingabúðir meistaraflokks Fram í handbolta á Blönduósi
Meistaraflokkur Fram í handbolta kvenna munu æfa í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi frá og með morgundeginum, fimmtudaginn 30. ágúst til sunnudagsins 2. september. Húni.is greinir frá þessu.
Í liðinu eru nokkrar landsliðskonur en þeirra á meðal er Sunna Jónsdóttir barnabarn Sigríðar Baldursdóttur og Ingva Þórs Guðjónssonar málarameistara á Blönduósi.
Samkvæmt Húna.is munu Fram stelpurnar spila æfingarleik kl. 18:00 föstudaginn 31. ágúst á móti Þór/KA. Eru allir hvattir til að mæta og horfa á leikinn.
Dagskrá meistaraflokksins:
- Fimmtudaginn 30. ágúst er æfing frá kl. 17:30 til kl. 19:00.
- Föstudaginn 31. ágúst er æfing frá kl. 10:30 til kl. 12:00 og svo kl. 18:00 er æfingarleikur við Þór/ KA.
- Laugardaginn 1. sept. er æfing frá kl. 10:30 til kl. 12:00 og kl. 16:00 til kl. 17:30.
- Sunnudaginn 2. sept. er æfing frá kl. 11:00 til kl. 12:30.