Ætla hætta viðhaldi og þjónustu
Vegagerðin hefur tilkynnt bæjarráði Blönduósbæjar að hún hyggst hætta að greiða fyrir viðhald og þjónustu á Húnabraut og Hafnarbraut frá gatnamótum Hringvegar að hafnarsvæði. Kom þetta fram bæjarráðsfundi Blönduósbæjar þann 5. júlí sl.
Í bréfi frá Vegagerðinni dags. 16. maí 2012 er sú ástæða tilgreind að þar sem Blönduóshöfn telst ekki landshöfn í grunnneti, fellur Húnabraut og Hafnarbraut frá gatnamótum Hringvegar að hafnarsvæði, ekki lengur undir skilgreiningu þjóðvega. Mun Vegagerðin því hætta að greiða fyrir viðhald og þjónustu á umræddum vegum frá og með 1. janúar 2013.
„Ef til þess kemur, að stjórnvöld ákveða að fjármagna að einhverju leyti viðhald og þjónustu þeirra vega sem féllu út af vegaskrá með gildistöku vegalaga nr. 80/2007 mun sú ákvörðun einnig gilda um Húnabraut og Hafnarbraut, eftir því sem við á,“ segir í bréfinu.
Kveðið er á um þjóðvegi og flokkun þeirra í þriðja kafla vegalaga frá 2007 en þar segir m.a. að stofnvegir séu hluti af grunnkerfi samgangna og er það skilgreint í samgönguáætlun hverju sinni. Samkvæmt lögunum er heimilt að láta stofnveg ná til flugvallar og hafnar sem mikilvæg eru fyrir ferðaþjónustu og flutninga.
Á fundinum kynnti bæjarstjóri minnisblað frá Ágústi Þór Bragasyni, yfirmanni tæknideildar, þar sem reifuð eru mótrök fyrir þessari ákvörðun Vegagerðarinnar. Bæjarstjóra var falið að senda bréf á Vegagerðina og andmæla þessari aðgerð Vegagerðarinnar og senda afrit á þingmenn og ráðherra samgöngumála.