Ætluðu gangandi yfir Kjalveg

Björgunarfélagið Blanda fékk útkall kl. 07:45 í gærmorgun þar sem fjórir Bretar sem ætluðu gangandi yfir Kjalveg óskuðu eftir aðstoð. „Þeir voru að verða nokkuð uppgefnir og kaldir og treystu sér ekki að halda göngunni áfram,“ segir í tilkynningu frá Bf. Blöndu.

Bretarnir lögðu af stað fyrir fjórum dögum frá Blönduósi og voru búnir að gista í tjaldi þessa daga. Björgunarsveitarmenn komu að þeim um kl. 9:30 þar sem þeir höfðust við í tjöldunum sínum rétt hjá Arnarbælistjörn og voru þeir kátir og þakklátir þegar aðstoðin barst.

„Veðrið var sæmilegt á þessum slóðum, skafrenningur en gekk á með nokkuð dimmum éljum inná milli og var um 10 gráðu frost. Farið var með þá á Blönduós og ætluðu þeir að láta sér nægja að taka strætó til Reykjavíkur,“ segir loks í tilkynningunni.

Meðfyljandi myndir tók Ólafur Sigfús Benediksson.

Fleiri fréttir