Ævintýrabúðirnar í Háholti verða áfram næstu tvö sumur

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur undirritað samning við Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra um sumardvöl barna og ungmenna með ADHD, einhverfu og aðrar skyldar raskanir í Háholti í Skagafirði nú í sumar og sumarið 2023.
Á heimasíðu Stjórnarráðsins kemur fram að undanfarin tvö sumur hafi Reykjadalur fengið styrki frá íslenskum stjórnvöldum til þess að bjóða upp á sumardvöl í Háholti fyrir þennan hóp sem hluta viðspyrnuaðgerða vegna COVID-19. Markmið styrksins var að fjölga valkostum um afþreyingu fyrir hópinn, bjóða upp á tilbreytingu yfir sumartímann og rjúfa félagslega einangrun þeirra ásamt því að létta álagi af fjölskyldum barna. Segir í fréttinni að mikil ánægja hafi verið með dvölina. Tekið verður á móti 10-14 börnum í einu í eina til tvær vikur í senn og gert er ráð fyrir að allt að 120 börn og ungmenni geti nýtt sér dvölina essi tvö sumur.
„Covid-19 faraldurinn hafði mikil áhrif á börn og ungmenni og fjölskyldur þeirra. Með því að styrkja hið frábæra starf Styrktarfélagsins viljum við bregðast við því og gera fleiri börnum kleift að eiga skemmtilegar stundir í sumar og fjölga valkostum þeirra til frístunda,“ segir Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra.
Vilmundur Gíslason, framkvæmdarstjóri styrktarfélagsins segir að fólk á þeim bænum gríðarlega þakklátt fyrir að ráðherra treysti því enn og aftur fyrir þessu þarfa verkefni. „Það er mikil eftirspurn eftir frístundavalkostum fyrir þennan hóp. Síðastliðin tvö sumur hafa verið alveg frábær í Háholti enda hefur svæðið upp á margt að bjóða til þess að gera dvölina ævintýralega. Það var því mikil gleði bæði meðal foreldra og barna þegar ljóst var að ævintýrabúðirnar í Háholti verði áfram næstu tvö sumur. Samstarfið við ráðuneytið hefur frá upphafi verið frábært og lausnamiðað. Við fengum mikið frelsi til þess að koma með hugmyndir og styrkurinn gerir okkur kleift að bjóða enn stærri hóp upp á sumardvöl hjá Reykjadal.“