Ævintýralegar réttir helgarinnar

Mikið um að vera í réttum og smalamennsku  þennan mánuðinn. Um helgina verða fjár- og stóðréttir víða í Skagafirði og í Húnavatnssýslum. 

Réttir í Skagafirði

Á morgun, laugardaginn 17. september, verða fjárréttir í Hofsrétt, Deildardalsrétt og stóðréttir verða Staðarrétt og Skarðarétt.

Á sunnudaginn 18. september verða fjárréttir í Hlíðarrétt, Flókadalsrétt í Fljótum, Laufskálarétt, Mælifellsrétt og Silfrastaðarétt en þar verður réttað aftur daginn eftir, mánudaginn 19. september.

Réttir í Austur-Húnavatnssýslu

Mikið fjör verður um helgina í tengslum við stóðsmölun í Austur-Húnavatnssýslu undir heitinu „Ævintýrið Skrapatungurétt“ og eiga gestir þess kost að slást með í för. Stóðhrossin verða rekin til byggða á laugardaginn 17. september. Lagt verður af stað frá Strjúgsstöðum í Langadal kl. 10.

Á laugardagskvöldið leikur hljómsveitin Paparnir fyrir dansi í Félagsheimilinu Blönduósi. Húsið opnar kl. 23:00, barinn verður opinn og 18 ára aldurstakmark.

Á sunnudagsmorgun hefjast réttarstörf í Skrapatungurétt um kl. 11. Fyrir þá sem heldur vilja koma á bíl til að fylgjast með gangnamönnum og réttarstörfum, er rétt að benda á að Skrapatungurétt er í um 15 mín. akstur frá Blönduósi, ekið er um Skagastrandar-og Laxárdalsveg, en fram að Kirkjuskarðsrétt er aksturstími um 30-40 mín.

Á sunnudaginn fara einnig fram stóðréttir í Hlíðarrétt kl. 14.

Réttir í Húnaþingi vestra

Fjárréttir verða á morgun, laugardag í Hamarsrétt á Vatnsnesi og í Þverárrétt í Vesturhópi.

 

 

Fleiri fréttir