Ævintýri norðursins 2013 - Skrapatungurétt
Laugardaginn 14. september nk. verður hin árlega stóðsmölun á Laxárdal í Austur-Húnavatnssýslu. Öllum er velkomið að taka þátt í þessum einstaka reiðtúr en lagt verður upp frá Strjúgsstöðum í Langadal kl. 10:00. Áætlað er að koma í Kirkjuskarðsrétt kl. 14 og halda þaðan kl. 16. Veitingasala verður í Kirkjuskarðs- og Skrapatungurétt.
Aðstaða er til að geyma hesta frá föstudegi yfir á laugardag á Strjúgsstöðum, við sandnámu (norðan afleggjara). Þátttakendur eru beðnir að virða að ekki er leyfilegt að reka laus reiðhross í stóðsmöluninni.
Daginn eftir eða sunnudaginn 15. september kl. 11 hefjast stóðréttir í Skrapatungurétt en þar má búast við skemmtilegri og alíslensk stemmningu.
Ferðamannafjallkóngur verður sem fyrr Valgarður Hilmarsson en hann veitir nánari í síma 893 2059 eða á netfanginu vallih@centrum.is.