Áfangastaðaáætlun Norðurlands komin út

Mynd: Af vef Markaðsstofu Norðurlands, www.northiceland.is
Mynd: Af vef Markaðsstofu Norðurlands, www.northiceland.is

Á vef Markaðsstofu Norðurlands má nú finna DMP áfangastaðaáætlun fyrir Norðurland. Markaðsstofa Norðurlands hefur unnið að skýrslunni fyrir Ferðamálastofu Íslands sem heldur utan um slíkar greiningar í öllum landshlutum.  

Markmið verkefnisins var að gera stöðumat á ferðaþjónustu á Norðurlandi, greina ástand hennar í samhengi við innviði og markaðssetningu og sömuleiðis er skerpt á framtíðar-markmiðum ferðaþjónustunnar á Norðurlandi. Markaðsstofan lagði áherslu á að fá stærstu hagsmunaaðila svæðisins að borðinu ásamt þeim sem vildu leggja hönd á plóg varðandi forgangsröðun verkefna. Að lokum voru 15 verkefni valin sem forgangsverkefni á Norðurlandi næstu þrjú árin. 

Markaðsstofan hyggst kynna niðurstöður skýrslunnar betur, sem og framhald verkefnisins, á haustmánuðum. Ef einhverjir vilja koma á framfæri spurningum eða athugasemdum þá er vinsamlegast bent á að hafa samband við verkefnastjóra verkefnisins Björn H Reynisson, bjorn@nordurland.is

/Lee Ann

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir