Afhenti Orgelsjóði Blönduóskirkju eina milljón króna

Jón A. Sæbjörnsson, sóknarnefndarformaður Blönduóskirkju, tekur við ávísun úr hendi Sigurjóns Guðmundssonar frá Fossum. Myndir: Róbert Daníel Jónsson.
Jón A. Sæbjörnsson, sóknarnefndarformaður Blönduóskirkju, tekur við ávísun úr hendi Sigurjóns Guðmundssonar frá Fossum. Myndir: Róbert Daníel Jónsson.

Í dag, 30. mars, fagnar Sigurjón Guðmundsson frá Fossum í Svartárdal, 85 ára afmæli sínu. Við þau tímamót ákvað hann að afhenda Orgelsjóði Blönduóskirkju eina milljón króna. Í gær fór fram látlaus athöfn í Blönduóskirkju þar sem Sigurjón afhenti fjármunina með formlegum hætti. Viðstaddir athöfnina voru séra Úrsúla Árnadóttir, sóknarnefnd Blönduóskirkju og spilaði Eyþór Franzson Wechner, organisti tvö verk á orgelið.

Eyþór organisti spilar á orgelið

Eyþór spilar á orgelið.

Sigurjón hefur tekið virkan þátt í starfi kirkjunnar frá því að hann gekk til liðs við kirkjukór Blönduóskirkju árið 1997 eða í 23 ár. Hann vildi með þessu framlagi sínu stuðla að gleðilegum fréttum í samfélaginu.

Sigurjón rakti sögu orgelsins í Blönduóskirkju.Sigurjón rakti sögu orgelsins í Blönduóskirkju.

Á síðustu mánuðum hefur sóknarnefnd Blönduóskirkju gert áætlanir um að greiða niður lán sem hvílir á orgelinu en skuldin er mjög íþyngjandi fyrir rekstur kirkjunnar. Sóknarnefndin hyggur á tónleikahald á næstu tveimur árum til að safna fjármunum en markmiðið er að ná að greiða niður allt lánið. Framlag Sigurjóns skiptir því töluverðu máli og þakkar sóknarnefndin Sigurjóni kærlega fyrir höfðinglega gjöf. 

 

Sr. Úrsúla talaði til Sigurjóns og fór með ljóð.Sr. Úrsúla talaði til Sigurjóns og fór með ljóð.

Þeir sem vilja leggja málefninu lið geta lagt inn á reikning 0307-26-004701,
kt. 470169-1689.

F.h. Sóknarnefndar Blönduóskirkju,
Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson formaður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir