Afmælissýning Neista tókst vel
Hestamannafélagið Neisti var stofnað 1943 í Dalsmynni. Stofnendur voru 40 talsins, allt karlmenn. Guðbrandur Ísberg var formaður í 29 ár en núverandi formaður er Hjörtur Karl Einarsson. Í vetur var ákveðið að fagna afmælinu og halda afmælissýningu sem haldin var sl. sunnudag, 5. maí eftir að hafa verið frestað um viku vegna veðurs. Á Neisti.net segir að sýningin hafi tekist með eindæmum vel en veðurspáin var ekkert spennandi fyrir þennan dag. „...rok og slydduspá en veðurguðinn var okkur ótrúlega hliðhollur og var frábært veður framan af degi en um leið og sýningin var búin, rauk hann upp með norðaustan roki og rigningu. Vægast sagt ömurlegu veðri.“
Í vetur voru 40 börn og 10 fullorðnir á námskeiðum hjá félaginu. Langflest börnin tóku þátt í sýningunni en einnig komu nokkrir unglingar sem eru burtu í framhaldsskóla og æfðu nokkrar helgar, sem og krakkar sem ekki eru á námskeiðum. Í heildina tóku því nærri 50 börn þátt í sýningunni.
Sonja Noack sá um alla kennslu í vetur og var yngsti nemandinn 2ja ára og sá elsti 67 ára. Sá yngsti og sá elsti heita báðir Magnús Ólafsson og eru kenndir við Sveinsstaði. Þeir voru auðvitað báðir mættir á sýninguna og voru glæsilegir.
Neistafélagar eru afar glaðir með daginn, það kom margt fólk að horfa á og njóta dagsins. Margir þátttakendur, á ýmsum aldri, tóku þátt og allir höfðu gaman af. Augljóslega mikið og gott starf sem unnið er í hestamannafélaginu og má það vera stolt af því hvað Neisti á marga glæsilega og flotta knapa og hesta.
HÉR má sjá fleiri myndir og umfjöllun frá glæsilegri sýningu.