Áfram Hvöt er nýtt stuðningsmannalag þeirra hvítu og rauðu

„Ungmennafélaginu Hvöt hefur lengi vantað gott stuðningsmannalag en þónokkur ár eru síðan Ekki vera löt, allir í Hvöt kom út. Þegar ég hafði samband við Einar Örn og Baldur síðsumars 2023 stóð ekki á svörum. Úr varð þessi frábæri hittari sem mun án efa fá góðar viðtökur hjá félagsmönnum Hvatar, íbúum Húnabyggðar og bara öllum öðrum. Áfram Hvöt!” segir Grímur Rúnar Lárusson, formaður Ungmennafélagsins Hvatar, í færslu á Facebook-síðu Umf. Hvatar þar sem nýtt stuðningsmannalag, Áfram Hvöt, er kynnt til sögunnar.

Það eru Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur sem gefa lagið út en lag og texti eru eftir Blönduósinginn Einar Örn Jónsson (Sigurðssonar) sem gerði garðinn frægan með hljómsveitinni Í svörtum fötum í denn og þarf ekki að kynna fyrir heimamönnum. Það er sonur Einars, Baldur , sem syngur lagið en útsetningin var í höndum þeirra feðga.

„Það er mikill heiður að hafa fengið að spreyta sig á þessu verðuga verkefni,“ er haft eftir Einari í færslunni á síðu Hvatar. „Mér þykir að sjálfsögðu afar vænt um Ungmennafélagið Hvöt, enda æfði ég og lék knattspyrnu með félaginu upp alla yngri flokka. Ég náði meira að segja að standa í markinu í tvo eða þrjá leiki í meistaraflokki sumarið 1995. Það var þá sem ég áttaði mig á því að tónlistin hentaði mér líklega betur. Það er virkilega gaman og gefandi að vinna tónlist með syni sínum. Við Baldur erum bæði spenntir og stressaðir að vita hvernig viðtökur þetta nýja lag fær. En við vonum auðvitað að það hljómi á Blönduósvelli í sumar og sem víðast þar sem Hvatarfólk er á ferð.“

Hresst og grípandi lag með skemmtilegum texta ... ekki bara pulsa og kók, ekki bara stutt út á Krók ... það er hægt berja dýrðina eyrum á Spottanum >

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir