Ágæt veiði í Miðfjarðará

Vatnsdalsá hefur skilað 585 löxum í sumar. Mynd: FE.
Vatnsdalsá hefur skilað 585 löxum í sumar. Mynd: FE.

Nú hafa veiðst 3239 laxar i Miðfjarðará og er hún enn sem fyrr í öðru sæti á listanum yfir aflahæstu árnar. Á sama tíma í fyrra höfðu veiðst 3677 laxar í ánni. Blanda, sem verið hefur í fimmta sæti á listanum, fellur nú niður í það sjötta með 1430 laxa en ekki veiddust nema 13 laxar í ánni í síðustu viku. Er þar fyrst og fremst að kenna yfirfallinu í Blöndulóni. Miklu munar á veiðinni í Blöndu nú og á síðasta ári þegar hún hafði skilað 2330 löxum á sama árstíma.

Í Laxá á Ásum hafa nú veiðst 942 laxar samanborið við 620 í fyrra. Víðidalsá er með 639 og Vatnsdalsá með 585. Hrútafjarðará og Síká eru með 266 laxa og loks er Svartá aðeins með 110 laxa.

Fleiri fréttir