Áheyrnaprufur fyrir Stúlknakór Söngskóla Alexöndru og Draumaraddir

Áheyrnaprufur fyrir stelpur 10-16 ára í Draumaraddir, Stúlknakór Söngskóla Alexöndru fer fram laugardaginn 10. september kl. 10:00 í Húsi frítímans. Þátttakendur þurfa að undirbúa  eitt lag fyrir áheyrnaprufu og hefjast stúlknakórs æfingar strax á eftir en þær verða á laugardögum frá 10:00 til 12:00 í Húsi frítímans í vetur.

Skráning fer fram á alexandra@dreamvoices.is og kostar kr. 22.000 fyrir árið 2011-2012.

Stúlknakór Söngskólans var stofnaður í janúar árið 2008 af Alexöndru Chernyshovu, sem útskrifast frá Tónlistarákademiu í Úkraínu með hæstu einkunn í óperusöng, kamersöng og söngkennslu.

Frá 2008 hefur stúlknakórinn tekið þátt í skemmtilegum verkefnum, m.a. - Söngdagskrá um Sigvalda Kaldalóns með Guðrunar Ásmundsdóttur/leikkonu, vor- og jólatónleikar með stúlknakór Norðurlands vestra/Draumaraddir Norðursins, tónleikarnir - Söngveisla með Kristjáni Jóhannssyni og Alexöndru Chernyshovu, hátíðartónleikar 8.mars/alþjóðadagur kvenna, tónleikarnir "Söngur-Djass-Gleði" með Einari Braga saxófónleikara, jólatónleikar með Frostrósum, uppsetningu á vinsældasta söngleik A. Lloyd Webber "Óperudraugurinn" í uppfærslu Óperu Skagafjarðar o.fl.

Í vetur er stúlknakórinn að taka þátt í alþjóðalegu verkefni með kórum frá Litháen, Eistlandi og Lettlandi og er einnig að vinna að útgáfu geisladisksins "Draumaraddir".

Fleiri fréttir