Áhugaverð málstofa um hérðasfréttamiðla hefst kl. 11

Feykir fréttablað Norðurlands vestra stendur fyrir málstofu, í samstarfi við Sveitarfélagið Skagafjörð, í tengslum við atvinnulífssýninguna Skagafjörður – Lífsins gæði og gleði. Í málstofunni verða málefni héraðsfréttamiðla til umfjöllunar, hvaða gildi þeir hafa fyrir samfélagið og menningar- og sögulegt hlutverk þeirra.

Málstofan fer fram laugardaginn 26. apríl í nýrri álmu Árskóla, Þekjunni í stofu A, og hefst kl. 11. Fundarstjórn verður í höndum Sigríðar Kristínar Þorgrímsdóttur.

Áhugaverðir fyrirlesarar og miklir reysluboltar á sínu sviði hafa verið fengnir til þess að taka til máls. Þeir eru eftirfarandi:

Birgir Guðmundsson dósent í fjölmiðlafræði við HA
- Lýðræði, svæðisbundin miðlun  og límið í samfélaginu.

Þórhildur Ólafsdóttir fjölmiðlakona frá Akureyri
- Að vera fréttamaður á landsbyggðinni.

Hrafnkell Lárusson sagnfræðingur
- Þörfin fyrir svæðisbundna fjölmiðla og hlutverk þeirra.

Jón Jónsson, þjóðfræðingur á Ströndum
- Svæðismiðlar, sjálfsmynd og ímynd.

Héraðsfréttablöð teygja anga sína inn á öll svið mannlífsins á landsbyggðinni og snerta okkur öll. Allir velkomnir!

Fleiri fréttir