Áhugaverðara byggðasafn

Fimmtudaginn 28. apríl s.l. var haldinn fundur í stjórn Byggðasamlags um menningar og atvinnumál í A-Hún. þar sem Sigríður Hjaltadóttir og Björn Magnússon kynntu breytingar á Byggðasafninu á Reykjum.

Þau Sigríður og Björn fjölluðu um vinnu sem Sigríður Backman hefur unnið að og fjallar um breytingar á safninu með það fyrir augum að tengja m.a. betur saman muni safnsins við söguna.

Áætlunin gengur út á að breytingarnar á safninu taki allt að tvö ár eftir því hversu vel gengur að fjármagna verkefnið. Megin áformin snúast um að gera safnið áhugaverðara og að heimsóknum á safnið fjölgi um leið og öll aðstaða verði bætt.

Fleiri fréttir