Áhyggjur yfir þeirri alvarlegu stöðu sem uppi er í samfélaginu

Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi var haldinn í Borgarnesi 13. október 2012. Í ályktun frá fundinum er lýst yfir miklum áhyggjum yfir þeirri alvarlegu stöðu sem uppi er í samfélaginu og að erfiðleikar almennings og atvinnulífs sé birtingarmynd hennar.

Í ályktunni segir:

„Vaxandi skattheimta dregur þrótt úr samfélaginu og skerðir þar með lífskjör til lengri tíma. Ólíðandi höft  á uppbyggingu alls atvinnulífs hafa staðið yfir allt of lengi. Kjördæmisráðið hafnar aðför ríkisstjórnarinnar að íslensku samfélagi, og því neikvæða viðhorfi sem ríkisstjórnin hefur í garð sjávarútvegs, stóriðju, ferðþjónustu og fleiri atvinnugreina.

Sjálfstæðisflokkurinn í Norðvesturkjördæmi leggur áherslu á jákvætt viðhorf til atvinnulífsins, sem er forsenda endurreisnar fjárhags heimilanna í landinu.

Fundurinn hvetur til sóknar í uppbyggingu samgöngukerfisins, sem er hagkvæm aðgerð er styrkir grunnstoðir samfélagsins. Gott vegakerfi er forsenda atvinnulífs og þar með byggðar í dreifbýli.

Aðalfundurinn hafnar hörmulegum vinnubrögðum við breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins. Breytingar á stjórnarskránni þurfa að vera gerðar af yfirvegun. Fundurinn hvetur Íslendinga til að mæta á kjörstað og hafna tillögum svokallaðs stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

Aðalfundurinn eggjar þingmenn Sjálfstæðisflokksins til að  leggja fram nýja byggðastefnu byggða á samþykktum landsfundar Sjálfstæðisflokksins.

Aðalfundurinn telur umsókn um aðild að Evrópusambandinu vera ótímabæra og brýnna að sinna öðrum mikilvægari málum. Fundurinn hvetur til þess að hlé verði gert á aðildarviðræðunum og þær ekki hafnar á nýju nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi ályktar að ekki verði unnt að snúa við þeirri alvarlegu stöðu sem uppi er í þjóðfélaginu, nema horfið verði frá þeirri stöðnunar og afturhaldsstefnu sem nú ríkir. Til þess verður Sjálfstæðisflokkurinn að vinna sigur í alþingiskosningunum í vor og stýra næstu ríkisstjórn.“

Fleiri fréttir