Ákvörðun um leyfilegan heildarafla 2013/2014

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur tekið ákvörðun um heildarafla tiltekinna fisktegunda á næsta fiskveiðiári 2013/2014. Almennt ástand fiskistofna á Íslandsmiðum verður að teljast býsna gott og jafnvel öfundsvert samkvæmt nýjustu ástandsskýrslu Hafrannsóknastofnunar, segir á heimasíðu atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins.

Þar segir að sú stefna hafi verið mörkuð um árabil að fylgja svo sem kostur er vísindalegri ráðgjöf og má fullyrða að það sé meginástæða þessa góða árangurs. Um þessa stefnu hefur verið vaxandi samstaða í þjóðfélaginu og ekki síst meðal flestra hagsmunaaðila.

„Það er eftir sem áður mikilvægt að fara reglulega yfir hvaða aðferðum er beitt og eiga samtal við greinina sjálfa og aðra um rannsóknir og ráðgjöf. Reynslan af langtíma nýtingarstefnu og aflareglu í þorski hefur fram að þessu verið mjög góð, þótt sumir hafi viljað fara hraðar í sakirnar. Á þessu ári er unnið að endurskoðun á þessari aflareglu og mun Hafrannsóknastofnun, án alls vafa, hafa um það samráð við hagsmunaaðila, svo sem mögulegt er. Til viðbótar má nefna sem þekkt er að nú er einnig í gildi langtíma nýtingarstefna með aflareglu fyrir ýsu og ufsa og eftir áramót er þess að vænta að Alþjóðahafrannsóknaráðið leggi formlegt mat á tillögu stjórnvalda um langtímanýtingarstefnu og aflareglu fyrir gullkarfa.“

Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir