Álagning fasteignagjalda 2011 greiðsluseðlar eingöngu sendir í heimabanka

Upphafsálagningu fasteignagjalda 2011 fyrir Blönduósbæ er lokið og verða álagningarseðlar póstsendir nú í byrjun viku Upphafsálagningin nemur samtals 112 milljónum króna í ár, þar af er fasteignaskatturinn 53 milljónir króna, lóðar- og landleiga 13 milljónir króna, fráveitugjöld 17 milljónir króna, sorpgjöld 11 milljónir króna og vatnsgjald 18 milljónir króna.

Gjaldaseðlar eru 796. Afsláttur örorku- og ellilífeyrisþega hefur verið reiknaður til bráðabirgða og kemur hann til frádráttar álagningunni. Ekki er þörf á að sækja um þann afslátt.

Ýmsar breytingar voru gerðar við álagninguna miðað við fyrri ár. Hætt er álagningu sorpeyðingargjalda á rekstraraðila og munu þeir framvegis greiða sorpeyðingargjald við afsetningu sína á úrgangi í endurvinnslustöð Blönduósbæjar eða beint til þjónustuaðila séu þeir í viðskiptum við þá. Þar með verður allt sorpmagn viktað og ber að greiða eftir þyngd eða rúmmáli fyrir förgun á því. Fyrirtæki geta einnig minnkað sorpmagn hjá sér með flokkun og þarf ekki að greiða fyrir förgun á úrgangi sem ber úrvinnslugjöld, svo sem pappír, bylgjupappír og plast.

Önnur breyting er að sendur verður út greiðsluseðill með fyrsta gjalddaga fasteignagjalda en framvegis mun greiðsluseðilinn birtast í heimabanka viðkomandi og verður hætt útsendingu greiðsluseðla nema þess sé óskað að þeir séu sendir út. Er þeim aðilum bent á að snúa sér til afgreiðslu Blönduósbæjar eða hafa samband í síma 455 4700.

Fleiri fréttir