Álagning fasteignagjalda í Húnavatnshreppi lokið

Húnavatnshreppur hefur gefið frá sér fréttatilkynningu þess efnis að álagning fasteignagjalda 2012 er lokið og munu álagningarseðlar berast með pósti í vikunni. 

Innheimtuseðill vegna fyrri gjalddaga ársins var póstlagður um leið, gjalddagi 1. júní og eindagi 30. júní.

Minni á að greiðendur hafa 30 daga frest til að gera athugasemdir við gjaldtöku Húnavatnshrepps. Athugasemdir þurfa að vera skriflegar og vel rökstuddar. Hreppsnefnd er heimilt að breyta gjaldtöku með tilliti til réttmætis framsettra athugasemda,“ segir á heimasíðu Húnavatnshrepps.

 

 

Fleiri fréttir