Álft olli rafmagnsleysi á Sauðárkróki

Álft í stuði
Álft í stuði

Rafmagnslaust varð á Sauðárkróki klukkan 18:37 í gærkvöldi. Rafmagnsleysið stóð yfir í tæpan klukkutíma.

Svo virðist sem ástæða þess að Sauðárkrókslínu 1, eins og hún er kölluð hjá Landsneti, sló út, sé sú að álft hafi flogið á línuna og valdið skammhlaupi sem leysir út línuna.
Rafmagn komst aftur á klukkan 19:34.

Fleiri fréttir