Allir lagst á eitt í Svartárdal

Undanfarna daga hafa vinir og vandamenn lagst á eitt við að smala í Svartárdal og líta eftir fé. Samkvæmt heimildum Rúv.is hafa á milli tuttugu til þrjátíu kindur fundist dauðar fram til þessa.

Þar eru um fimm hundruð vetrarfóðraðar ær og að sögn Jakobs Sigurjónssonar, bónda á Hóli, lítur féð furðuvel út miðað aðstæður.

„Það er náttúrlega búið grafa talsvert mikið úr fönn og þetta er fjórði dagurinn sem við erum að smala og líta eftir fé. En við höfum fundið á bilinu tuttugu til þrjátíu kindur sem eru dauðar. Annars lítur féð alveg merkilega vel út.  En við vitum að okkur vantar eina sjö hrúta sem áttu að vera á tiltölulega afmörkuðu svæði,“ segir Jakob í samtali við Rúv sl. laugardag.

Jakob viðurkennir að snjórinn, sem kyngdi niður, hafi komið þeim á óvart en þeir hafi hins vegar náð tökum á ástandinu.

Fleiri fréttir