Allir rafiðnaðarnemar fá spjaldtölvur
Fulltrúar frá Rafiðnaðarsambandi Íslands og SART, Samtökum rafverktaka komu færandi hendi í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra í gær og færðu nemendum rafiðna við skólann spjaldtölvur að gjöf. Allir nemar í rafiðngreinum á landinu, samtals um 800 manns, fá gefins spjaldtölvur í haust frá samtökunum tveimur fyrir hönd allra atvinnurekenda og launþega í rafiðnaði.
Tilgangur gjafarinnar er að tryggja að nemarnir geti nýtt sér það mikla úrval af kennsluefni sem er þegar í boði á rafrænu formi og stuðla að betri námsárangri og fjölgun nemenda í þessum greinum en mikil vöntun er á rafiðnaðarmönnum á Íslandi.
„Við notum tölvurnar mikið til að ná í upplýsingar og teikna en allt lesefni og verkefni eru sótt á rafbok.is.,“ segir Garðar Páll Jónsson deildarstjóri rafiðna við FNV en bætir því við að skilaverkefni séu ennþá skriflegar. „Þetta snýst kannski meira um að vita sem fagmaður hvar þú leitar að upplýsingum til að nota í stað þess að reyna að muna þær. Þetta er mjög höfðinglegt framtak hjá þessum samtökum.“
Nánar í Feyki