Allra síðasta sýning á Á svið nk. miðvikudag

Nú fer hver að verða síðastur til að sjá gamanleikinn Á svið sem Leikfélag Sauðárkróks hefur sýnt á fjölum Bifrastar undanfarnar tvær vikur. Allra síðasta sýning næsta miðvikudag.

„Sýningin hefur fengið frábærar viðtökur en nú er komið að leiðarlokum,“ segir Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir, formaður LS. „Við vorum búin að auglýsa að síðasta sýning á frábæra leikritinu okkar Á svið væri síðasta sunnudag en bættum einni sýningu við sem jafnfram verður sú allra síðasta nk. miðvikudag klukkan 20. Hvet fólk til að tryggja sér miða í síma 8499434.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir