Alls voru 146 nemendur brautskráðir frá FNV

Rétt ríflega helmingur þeirra 146 nemenda sem brautskráðust frá FNV nú á föstudaginn oru mættir í íþróttahúsið. MYNDIR: PÉTUR INGI OG ÓLI ARNAR
Rétt ríflega helmingur þeirra 146 nemenda sem brautskráðust frá FNV nú á föstudaginn oru mættir í íþróttahúsið. MYNDIR: PÉTUR INGI OG ÓLI ARNAR

Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 44. sinn við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki föstudaginn 26. maí 2023 að viðstöddu fjölmenni. Alls brautskráðust 146 nemendur af 15 námsbrautum og hafa nú 3100 nemendur brautskráðst frá skólanum frá upphafi skólahalds haustið 1979. Feykir er ekki alveg með það á kristaltæru en sennilega hafa aldrei jafn margir nemendur brautskráðst og nú.

Ingileif Oddsdóttir skólameistar fjallaði í sínu máli m.a. um vaxandi áhuga á námi í iðngreinum sem hefur leitt til þess að rúmur helmingur sækir nú um nám í iðn- og starfsnámi samanborið við 14% haustið 2007. Þessi þróun er m.a. til komin af átaki menntamálayfirvalda, iðn- verkmenntaskóla landsins, Samtaka iðnaðarins og Sambands íslenskra sveitarfélaga á Íslandi. Samhliða var aðgengi að háskólanámi aukið og markvisst er unnið að uppbyggingu á aðstöðu fyrir verknám.

Í frétt á vef FNV segir að skólinn hafi tekið virkan þátt í þessari þróun sem endurspeglast m.a. í því að haustið 2022 stundaði 391 nemandi af 703 iðn- og starfsnám við skólann. „Til að mæta þessari þróun stendur til að byggja 1.200 fm. viðbót við verknámshús skólans en ráðgert er að framkvæmdir hefjist vorið 2024.“

Þá flutti Kristján Bjarni Halldórsson, vetrarannál skólans þar sem stiklað var á stóru í starfsemi hans. „Á haustönn voru skráðir 703 nemendur og á vorönn voru þeir 669. Nemendur stunduðu námið í dagskóla, helgarnámi eða fjarnámi. Á haustönn 2022 störfuðu 66 starfsmenn í 55 stöðugildum við skólann og á vorönn 2023 64 starfsmenn í 55 stöðugildum. Meðal viðburða má nefna að skólinn hafnaði 5. sæti í Stofnun ársins. Hann hlaut einnig viðurkenninguna Byggðagleraugun frá SSNV fyrir framsækið og metnaðarfullt skólastarf. Þá hlaut skólinn nýverið vottun á ISO:9001 staðlinum sem nær til alls skólastarfs. Mikil eftirspurn hefur verið eftir helgarnámi í iðngreinum og stefnt er að ferkara framboði í þeim efnum. Loks má geta þess að félagslífið hefur verið öflugt og drifið áfram af metnaðarfullu nemendaráði,“ segir í fréttinni.

Að loknum vetrarannál fór fram brautskráning og afhending viðurkenninga, sem var í höndum skólameistara. Alls brautskráðust 146 nemendur af eftirtöldum námsbrautum en alls var gefið út 161 prófskírteini:

Félagsvísindabraut: 3
Fjölgreinabraut: 20
Hestabraut: 2
Náttúruvísindabraut: 5
Stúdentspróf starfsnáms: 7
Húsasmíði: 37
Húsgagnasmíði: 2
Íþróttaakademía: 1
Meistaraskóli: 17
Rafvirkjun/Rafvirkjun f. vélstjóra: 25
Sjúkraliðabraut/Sjúkraliðabrú: 14
Starfsbraut: 3
Trefjaplastsmíði: 11
Vélvirkjun: 7
Vélstjórn B: 7

Dagný Erla Gunnarsdóttir og Óskar Aron Stefánsson fluttu ávarp fyrir hönd brautskráðra nemenda og Hólmfriður Sveinsdóttir flutti ávarp nemenda sem brautskráðust fyrir 30 árum síðan. Þau Dagný Erla og Óskar Aron sáu svo um tónlistarflutning ásamt Inga Sigþóri Gunnarssyni og Írisi Helgu Aradóttur við undirleik Rögnvaldar Valbergssonar.

Þrír starfsmenn sem starfað hafa við skólann um langt árabil hafa nú látið af störfum vegna aldurs en það eru þau Atli Már Óskarsson, Helga Ottósdóttir og Helga Sigurðardóttir. Var þeim þakkað fyrir sitt framlag.

Sjá nánar á vef FNV >

- - - - -
Myndirnar sem hér fylgja tóku Pétur Ingi og Óli Arnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir