Allt milli fjalls og fjöru

Síðustu daga hefur verið í mörg horn að líta hjá björgunarsveitinni Strönd, samkvæmt heimasíðu sveitarinnar, og voru verkefnin fjölbreytt og fluttu björgunarsveitarmenn allt milli fjalls og fjöru í orðsins fyllstu merkingu.

Í óveðrinu sem skall á annan í páskum slitnaði báturinn Laxdal HU 47 frá bryggju á Skagaströnd. Mjög hvasst var milli klukkan átta og níu um morguninn og fóru hviður í 38 m/s en stöðugur vindur var 22-24 m/s. Björgunarsveitin sendi mannskap í að koma bátnum að bryggju og binda hann aftur. Jafnframt var aðstoðað við að færa Sæfara SK 112 til í höfninni, í betra lægi.

Ekki varð neitt tjón svo vitað sé þótt hvasst hafi verið enda íbúar hér um slóðir ekki alveg óvanir slíkum vindi. Lítið hefur að vísu farið fyrir norðaustanáttinni undanfarið svo þetta var svona hálfgerð upprifjun, bara svona til að við gleymdum ekki að hún væri til,“ segja Björgunarsveitarmenn.

Á þriðjudag aðstoðaði Húnabjörg við að snúa togaranum Arnari í höfninni en hann var að leggja af stað í slipp á Akureyri. Viðsnúningurinn gekk vel þrátt fyrir vindbelging og að skipið væri galtómt, en búið að taka allt frá borði eins og t.d. umbúðir, veiðarfæri og annað slíkt.

Skipið var því mjög létt í sjó og því gat verið verra að hemja það í vindsperringnum. Gekk þetta þó vonum framar og án vandræða ,“ segir á heimasíðunni.

Sama dag kom beiðni frá Neyðarlínunni um að líta á sendana á Steinnýjarstaðafjalli vegna mikils hita í tækjaskúrnum. Tveir menn fóru og könnuðu málið og kom í ljós að snjór og klaki hafði lokað fyrir loftræstistúta og var því snarlega kippt í liðinn.

Þrátt fyrir leiðindaveður á fjallinu gekk ferðalagið vel enda menn að komast í æfingu aftur eftir nokkurt hlé á ferðum þarna upp en um var að ræða þriðju ferð sveitarinnar á fjallið á síðustu þrem vikum.

 

Fleiri fréttir