Allur búnaður eins og best verður á kosið

Einar Óli Fossdal við nýja sjúkrabílinn. Mynd: KSE
Einar Óli Fossdal við nýja sjúkrabílinn. Mynd: KSE

Glæsilegur sjúkrabíll, af gerðinni Benz Sprinter, kom á Blönduós á dögunum og leysir af hólmi eldri bíl sömu gerðar sem þar var fyrir. Er hann úr annarri sendingum af tveimur sem Rauði krossinn hefur látið innrétta í Póllandi og flutt til landsins, en fyrsta sendingin kom á síðasta ári. Að sögn Einars Óla Fossdal er allur búnaður í bílnum eins og best verður á kosið, bæði fyrir sjúklinga og starfsfólk.

Einar Óli segir muninn á hinum nýja bíl og þeim sem fyrir var fyrst og fremst vera hversu miklu betur fer um sjúklingana. Þá hefur vinnuaðstaða sjúkraflutningamanna verið bætt mikið í nýjustu bílunum. „Það er Rauða Krossinum til mikils sóma hvað þessir bílar eru vel útbúnir. Innréttingar eru orðnar betri og allt öryggi eins og best getur verið,“ segir hann. Loftdýnur og loftspelkur fyrir hendur og fætur, sem styðja við áverka og halda vel hita á slösuðu fólki, eru meðal nýjunga í búnaði í hinum nýja sjúkrabíl. „Þetta eru auðvitað tæki sem við viljum nota sem minnst,“ segir Einar Óli. „En þau þurfa að vera í lagi og sem betur fer hefur verið vel staðið að því að hafa þessa hluti í lagi.“

Tveir sjúkrabílar eru á Blönduósi og þar af starfa átta sjúkraflutningamenn. Sex þeirra standa fastar vaktir og tveir þeirra starfa jafnframt við húsvörslu og viðhald hjá HSN á Blönduósi. Sinna þeir allri Austur-Húnavatnssýslu en um 230 útköll eru í Austur-Húnavatnssýslu á ári og í um helmingi þeirra þarf að fara langar vegalengdir, gjarnan til Akureyrar eða Reykjavíkur. Auk þess að fara sjúkraflutningamenn frá Blönduósi oft í útköll í Skagafjörð og Húnaþing vestra þegar stærri slys verða. „Þeir eru líka boðnir og búnir að koma til okkar þegar vantar hjálp og finnst mér það frábært hvað þessi samfélög hérna á Norðurlandi vestra eiga flottan hóp sjúkraflutningamanna,“ segir Einar Óli að lokum.

Fleiri fréttir