Alþjóðlegi hrósdagurinn er í dag!
Í dag, 1. mars, er alþjóðlegi hrósdagurinn. Hrósdagurinn var fyrst haldinn í Hollandi fyrir 14 árum en er nú haldinn hátíðlegur víða um heiminn.
Á vefsíðu alþjóðlega hrósdagsins segir að aðstandendur hans vilji að dagurinn verði „jákvæðasti dagur heimsins“. Bent er á að engin markaðsöfl tengist deginum eins og verða vilji með suma aðra daga eins og valentínusardaginn, mæðra- og feðradaginn. Allir geti því tekið þátt og verið sé að höfða til einnar af grunnþörfum mannsins; þarfarinnar fyrir viðurkenningu.
Á Facebooksíðunni Hrós dagsins segir Ingrid Kuhlman:
"Til hamingju með hrósdaginn.
Öll höfum við þörf fyrir að fá hrós. Það er ekkert sem gleður meira, gefur meiri orku og gerir fólk ánægðara en hrós sem er sett fram af einlægni.
Margir kunna ekki að hrósa og enn fleiri eiga erfitt með að taka við hrósi. Við skiptum um umræðuefni eða verðum vandræðaleg.
Leyfðu þér að gleðjast yfir hrósi og þakkaðu fyrir það."
Og hrós dagsins fá veðurguðirnir fyrir einstaklega fallegt veður í dag.