Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2011

Mennta- og menningarmálaráðuneytið, innanríkisráðuneytið og SAFT standa fyrir ráðstefnu um Internetið á alþjóðlega netöryggisdaginn, þann 8. febrúar 2011 á Hilton hóteli, Nordica. Meðal fyrirlesara má nefna Lee Hibbard, verkefnisstjóra hjá Evrópuráðinu, sem mun fjalla um þróun og stefnumótun á Internetinu.

Einnig mun dr. William Drake, frá Centre for International Governance, Graduate Institute of International and Development Studies í Sviss, fjalla um nauðsyn á alþjóðlegu samstarfi vegna stefnumótunar á Internetinu. Í málstofum mun m.a. verða fjallað um fjölmarga fleti netnotkunar s.s. notkun barna og unglinga, samspil mannréttinda og netnotkunar, stafrænt aðgengi mennta- og menningarefnis, uppbyggingu nýrra atvinnuuppbyggingar á Internetinu, notkun og þróun á efni til náms og kennslu og álitaefni varðandi öryggi til fjarskiptainnviða á Íslandi.

Nánar er sagt frá dagskránni á www.saft.is

Fleiri fréttir