Alvarlegt flugslys á Akureyri
Lítil flugvél brotlenti á Hlíðarfjallsvegi rétt fyrir ofan Akureyrarbæ á athafnasvæði Bílaklúbbs Akureyrar á öðrum tímanum í dag. Flugvélin var frá Mývatni og var í sjúkraflugi, þrír voru um borð í vélinni.
Tveir þeirra þriggja sem voru um borð í sjúkraflugvél Mýflugs sem brotlenti við kvartmílubrautina í Hlíðarfjalli á Akureyri í dag, eru látnir. Þriðji maðurinn sem var í vélinni hlaut minniháttar meiðsl.
Annar mannanna var úrskurður látinn á slysstað en hinn við komuna á Sjúkrahúsið á Akureyri. Mbl.is segir frá þessu.