Alvarlegt umferðaslys í Langadal
Ökumaður flutningabíls var fluttur með þyrlu til Reykjavíkur eftir alvarlegt umferðaslys í brekku vestan við Bólstaðahlíðarbrekku fyrr í kvöld. Ekki er með öllu ljóst hvað olli slysinu en þó virðist sem tengivagn bíls á norðurleið hafi lent framan á bíl á suðurleið.
Samkvæmt upplýsingum af slysstað er ekki ljóst hvað það varð sem olli slysinu. Talið er að annað hvort hafi tengivagn losnað eða hinn bíllinn lent utan í tengivagninum. Á tengivagninum voru steypurör og dreifðust þau um veginn á 300-400 metra kafla.
Allri umferð um Þjóðveg 1 er nú beint um Þverárfjallsveg.
