Ánægja með Skaggann 2015

Bæjarhátíðin Skagginn var haldin á Skagaströnd dagana 14.-16. ágúst. Tómstunda- og menningarmálanefnd, sem stóð fyrir Skagganum og annaðist skipulag hennar, lýsir ánægju með framgöngu hátíðarinnar á vef sveitarfélagsins.

Markmið hátíðarinnar var að skapa skemmtilega stemningu á Skagaströnd þar sem íbúar og félagasamtök tækju höndum saman um að eiga góðar stundir og gleðidaga.

„Tómstunda- og menningarmálanefnd sem stóð fyrir hátíðinni og sá um skipulag hennar hefur farið yfir hvernig til tókst og telur að með góðum stuðningi allra þátttakenda, íbúa, félagasamtaka, fyrirtækja og stuðningsaðila hafi hátíðin tekist vel og staðið undir væntingum. Nefndin kaus að kalla alla þessa aðila „vini Skaggans“ og færir þeim öllum bestu þakkir fyrir þeirra framlag,“ segir á vefnum.

Nefndin þakkar sömuleiðis öllum þeim jákvæðu og góðu gestum sem sóttu hátíðina heim og lögðu einnig sitt af mörkum til að gera Skaggann að þeirri notalegu og skemmtilegu hátíð sem raun bar vitni.

Svipmyndir frá Skagganum má skoða hér.

Fleiri fréttir