Anna Áslaug með tónleika á fimmtudag

Fyrstu tónleikar haustsins á vegum Tónlistarfélags Skagafjarðar verða haldnir í sal Tónlistaskólans á Sauðárkróki fimmtudaginn 2. október en flytjandi kvöldsins er Anna Áslaug Ragnarsdóttir, píanóleikari.

Verkefnavalið byggist á óskum Tónlistarfélags Ísafjarðar af tilefni vígslu nýs Steinway konsertflygils í okt. sl. Efnisskráin á erindi til  allra sem kunna að meta falleg píanóverk spiluð af einum fremsta píanóleikara landsins.   Tónleikarnir hefjast klukkan 17:00 og er miðaverða krónur 500, frítt inn fyrir yngri en 18 ára.

Fleiri fréttir