Auglýsum eftir skötuframleiðendum - Rannsókn á vegum Háskóla Íslands

Verkuð skata klár í pottinn. Mynd: Af Facebook
Verkuð skata klár í pottinn. Mynd: Af Facebook

Hefur þú innsýn í íslenska skötuhefð og reynslu af því að kæsa skötu? Nú leitum við að framleiðendum um allt land sem verka skötu. Ef þú þekkir vel hvernig kæsing fer fram og/eða hvernig verklagið hefur breyst í tímans rás máttu endilega heyra í okkur! Sömuleiðis ef þú veist hverjir stunda slíka framleiðslu.

Tilgangurinn með rannsókninni er að kortleggja skötuframleiðslu og kæsingu til að fá betri innsýn í íslenska skötumenningu.

Þau sem hafa áhuga á að taka þátt í rannsókninni eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við þjóðfræðinginn Vilborgu Bjarkadóttir með tölvupósti á netfangið vilborg.bjarka@gmail.com.

Fleiri fréttir