Stofnfundur samtakanna Björgum Kristnesspítala
Vakin er athygli á stofnfundi samtakanna Björgum Kristnesspítala, sem haldinn verður sunnudaginn 1. nóvember kl. 17 á Hælinu, setri um sögu berklanna á Kristnesi. Tilefni stofnunar samtakanna er fyrirhuguð lok endurhæfingar á Kristnesi og vaxandi áhyggjur af framtíð þessarar mikilvægu heilbrigðisþjónustu.
Fjölmargir hafa lýst yfir óánægju með áformin og kallað eftir því að allir möguleikar á áframhaldandi starfsemi á Kristnesi verði kannaðir, meðal annars með endurbótum á núverandi húsnæði og mögulegri nýbyggingu.
Búið er að bjóða þingmönnum kjördæmisins, heilbrigðisráðherra og framkvæmdastjórn SAk á stofnfundinn. Við hvetjum fjölmiðla til að mæta og fjalla um málið. Á fundinum gefst tækifæri til að heyra sjónarmið þeirra sem vilja standa vörð um framtíð Kristness og ræða hvaða leiðir eru færar til að tryggja áframhaldandi starfsemi þar.
Hvar: Hælið – setur um sögu berklanna, Kristnesi
Hvenær: Sunnudaginn 1. nóvember kl. 17.00
/Fréttatilkynning
